Sunday, May 6, 2012

Hundasýning á Korputorgi 2-3 júní

Hundasýning HRFÍ
2. - 3. júní 2012
Hundasýning Hundaræktarfélags Íslands sem fram fer helgina 2. - 3júní 2012, verður haldin í húsnæði á Korputorgi. Skráningafresti lýkur föstudaginn 4maí 2012.
Dómarar að þessu sinni eru:  Liliane De Ridder-Onghena (Belgía), Cathy Delmar (Írland), Sean Delmar (Írland), Kitty Sjong (Danmörk), Albert Wight (Bretland). 
Vegna aukinna öryggiskrafna frá kreditkortafyrirtækjum getum við því miður ekki tekið við greiðslukortaupplýsingum á vef félagsins eins og gert hefur verið undanfarin ár.  Hundaræktarfélagið er að láta búa til skráningarvef sem stenst kröfur kreditkortafyrirtækjanna en hann verður því miður ekki tilbúinn fyrir næstu sýningu.
Vegna athugasemda vegna öryggi kreditkorta hefur félagið ákveðið að taka á móti skráningum (fyrir hunda og unga sýnendur) í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu).  Félagsmönnum býðst einnig, á eigin ábyrgð, að senda skráningu á sýningu í gegnum tölvupóst með nafni hunds í ættbók og ættbókanúmeri (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu svo skráning sé tekin gild).  Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabankaFélagsmenn geta eins og venjulega skráð á sýninguna á opnunartíma skrifstofu.
Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.

Friday, May 4, 2012

Sýningarþjálfun Smáhundadeildar


Boðið verður upp á sýningaþjálfun í versluninni Gæludýr.is á Korputorgi sem hér segir:

Þriðjudaginn 22. maí kl. 18.30 - 19.30 og kl. 19.30 - 20.30.

og þriðjudaginn 29. maí kl. 18.30 og kl. 19.30 - 20.30.

Vinsamlegast athugið: Þar sem aðsókn hefur verið mjög að sýningaþjálfun deildarinnar, verður nýr háttur hafður á.

Menn geta skráð sig fyrirfram til þátttöku í gegnum netfang deildarinnar,
smahundadeild@gmail.com. Þeir sem skrá sig hafa forgang.

Sex manns verða að hámarki í hverjum hópi (samtals 18 í hverjum tíma) þannig að hægt sé að veita eins persónulega leiðsögn og mögulegt er og sinna hverjum og einum eins vel og kostur er.

Hundanammi frá Dýrakoti verður í boði fyrir þá sem vilja.

Þátttökugjald í sýningaþjálfun er 650 krónur fyrir stakt skipti, en einnig er hægt að kaupa 8 tíma kort á staðnum og kostar það 4.000 krónur.

Leiðbeinendur: Sigríður Margrét Jónsdóttir, Sóley Ragna Ragnarsdóttir og Brynja Tomer.

Við borð: Elvar Gunnarsson/Ragnar Sigurðsson.
Til aðstoðar: Kristjana Svansdóttir.

Byrjun

Jæja nú er ég byrjuð með þetta blogg og hér birti ég upplýsingar um hundategundir og vefsíður að fróðleik og sölu, hundasýningar og margt MARGT fleira.
Bless bless og fylgist með :)