2. - 3. júní 2012
Hundasýning Hundaræktarfélags Íslands sem fram fer helgina 2. - 3. júní 2012, verður haldin í húsnæði á Korputorgi. Skráningafresti lýkur föstudaginn 4. maí 2012.
Dómarar að þessu sinni eru: Liliane De Ridder-Onghena (Belgía), Cathy Delmar (Írland), Sean Delmar (Írland), Kitty Sjong (Danmörk), Albert Wight (Bretland).
Vegna aukinna öryggiskrafna frá kreditkortafyrirtækjum getum við því miður ekki tekið við greiðslukortaupplýsingum á vef félagsins eins og gert hefur verið undanfarin ár. Hundaræktarfélagið er að láta búa til skráningarvef sem stenst kröfur kreditkortafyrirtækjanna en hann verður því miður ekki tilbúinn fyrir næstu sýningu.
Vegna athugasemda vegna öryggi kreditkorta hefur félagið ákveðið að taka á móti skráningum (fyrir hunda og unga sýnendur) í gegnum síma þar sem félagsmenn geta greitt með kreditkorti (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu). Félagsmönnum býðst einnig, á eigin ábyrgð, að senda skráningu á sýningu í gegnum tölvupóst með nafni hunds í ættbók og ættbókanúmeri (kortanúmer, gildistími og öryggisnúmer þarf að fylgja skráningu svo skráning sé tekin gild). Ekki er tekið við greiðslu í gegnum heimabanka. Félagsmenn geta eins og venjulega skráð á sýninguna á opnunartíma skrifstofu.
Til að forðast óþarfa bið í síma eru félagsmenn hvattir til að skrá á sýninguna sem fyrst.
No comments:
Post a Comment